Ég hef haft það fyrir reglu, að í þau fáu skipti sem ég geri hamborgara heima hjá mér, stefni ég ávallt að sama markmiðinu: Að útbúa besta hamborgara í heimi. Það hefur blessunarlega tekist í öll skiptin.
Á núverandi titilhafa er eftirfarandi:
Dijon sinnep
Smá hamborgarasósa
Tómatur, gúrka og kál
Smjörsteiktir sveppir
Spælt egg (báðum megin)
2x skinkusneiðar (steiktar á pönnu með osti á milli)
140 gr. hamborgari (meðalsteiktur)
"Best á borgarann" kryddblanda
Heimsborgarinn |
Ég hef gaman af þessu. Virkilega. Bíð þó eftir að ég verði boðinn í hunangsfroðuhátíð á sólvallagötunni.
ReplyDeleteTakk fyrir það kæra B.
ReplyDeleteHunangsfroðuhátíð er á næsta leyti, sem og cupcakes-námskeið þar sem við erum lærifeður! Svo einfalt er það.
Þú getur fundið nokkra líklega á þessari síðu: http://cheeseandburger.com/
ReplyDeleteOk þessi síða er rosaleg, ég fer hjá mér fyrir hönd Heimsborgarans! Kann líka að meta fagmanninn sem útskýrir borgarana, spurning um að taka þetta upp á síðunni.
ReplyDelete